152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

aðkoma Alþingis að sóttvarnaráðstöfunum í heimsfaraldri.

362. mál
[16:46]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Sigmar Guðmundsson) (V):

Virðulegur forseti. Það sem ég var kannski líka að reyna að fiska eftir og benda á það er það viðhorf sem kom fram hjá starfshópnum. Viðhorfið var að ráðherrarnir og ríkisstjórnin geta byggt sitt mat út frá ráðleggingum vísindamanna en þingið getur það ekki. Það er vettvangur stjórnmálanna, þingið. Ríkisstjórnin er það ekki. Nú hvet ég alla þingmenn til að líta aðeins inn á við og velta vöngum yfir því hvort þeir treysti sér ekki alveg til þess að taka ákvarðanir þegar verið er að skerða mannréttindi fólks vikum og mánuðum saman á öllum hugsanlegum sviðum, hvort menn séu þá ekki alveg tilbúnir til þess að hugsa svolítið vel um það sem vísindamenn hafa að segja um málið. Það er jú bara þannig að þeir sem setjast í ráðherrastólana eru líka þingmenn. Ég er bara að tala um að það megi ekki vera rof þarna á milli, að þeir sem eru að véla um þessi mál, skrifa greinargerðir og undirbúa lagafrumvörp, séu ekki með það viðhorf gagnvart Alþingi að að þingmenn geti einhvern veginn ekki sett sig almennilega og vísindalega inn í mál, en ráðherrarnir geti það. Það var því miður þannig í greinargerðinni sem kynnt var í samráðsgáttinni, en ég hygg að það sé búið að breyta því eða var það a.m.k. síðast þegar ég gáði og það er vel.

Ég hef talað fyrir því að það sé ekki nægjanlegt að það sé þingnefnd sem komi að málum heldur þingið allt. Þá er ég bara að tala um, svo ég árétti það, að það sé gert þegar mannréttindaskerðingar hafa staðið yfir í mjög langan tíma og það sé algjörlega geirneglt og tryggt að vald ráðherra til að bregðast skjótt við sé ekki skert. Ég er bara að tala um þessar langvinnu skerðingar. Það sem ég er í rauninni að koma hérna á framfæri þegar við erum að fjalla um þetta og tala um grundvallarskerðingar á mannréttindum fólks, er: Treystum Alþingi Íslendinga. Við höfum alveg jafn mikið vit í kollinum og ráðherrarnir sem sitja í ríkisstjórn.