152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

aðkoma Alþingis að sóttvarnaráðstöfunum í heimsfaraldri.

362. mál
[16:48]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrirspurnina og umræðuna hér og við eigum örugglega eftir að ræða þetta betur þegar ég mæli fyrir frumvarpinu sem hefur verið lagt fram. Í öðru lagi spurði hv. þingmaður hvort draga mætti þá ályktun af greinargerð starfshópsins að það væri óæskilegt að ráðherrar fjölluðu um málið á ríkisstjórnarfundum því að þá væru ákvarðanir ekki lengur byggðar á faglegum sjónarmiðum. Þessar aðgerðir og tillögur hafa verið ræddar á ríkisstjórnarfundum og ég tel það mjög mikilvægt, enda snerta þær málefnasvið fleiri ráðherra þótt ákvörðunarvaldið liggi hjá heilbrigðisráðherra, svona bara til að stytta þetta svar. Þá er rétt líka að halda því til haga að ákvarðanir um sóttvarnaráðstafanir hafa byggt á minnisblöðum og ráðleggingum sóttvarnalæknis og hafa almennt tekið litlum breytingum á fundum hæstv. ríkisstjórnar. Í þriðja lagi þá spurði hv. þingmaður um ráðherranefnd um samræmingu mála sem starfar þvert á ráðuneyti og velti því upp hvort hún væri ekki vettvangur stjórnmálanna. Mín reynsla af þessum fundum, þar sem sóttvarnalæknir var og fleiri sérfræðingar og minnisblöð sóttvarnalæknis voru rædd, var að þetta voru afar gagnlegir og beinlínis nauðsynlegir fundir. Ég veit að ég er að skauta svolítið yfir þessar spurningar og bið hv. þingmann forláts á því. Í fjórða lagi var spurt hvort alþingismenn sem ekki eru ráðherrar væru síður hæfir. Þá er svarið einfaldlega nei. Það eru auðvitað aðrar forsendur sem liggja til grundvallar þeirri ákvörðun sem lögð er til. Í fimmta lagi þá tel ég það til bóta, (Forseti hringir.) frá því sem verið hefur, að leggja málið hér til þingsins fyrr en áður hefur verið.