152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

biðlistar eftir valaðgerðum.

506. mál
[17:06]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Það er auðvitað alveg ömurlegt að 1.000 manns skuli vera á biðlista. Ef við tökum liðskiptaaðgerðirnar fyrir þá hlýtur að vera skelfilegt að vera númer 100 eða 200 á bið, bryðjandi verkjalyf í marga mánuði. Það hlýtur að vera eitthvað að kerfinu hjá okkur þegar við sjáum auglýsingu í blöðum um að þú getir farið til Danmerkur í aðgerð og aðeins eins mánaða bið. En það merkilega er að þeir taka fram í auglýsingunni að ef viðkomandi er búinn að bíða meira en þrjá mánuði á Íslandi fái hann allt borgað og aðstoðarmann líka. Þetta þýðir á mannamáli að það er verið að gera þarna þrjár aðgerðir fyrir eina, eða fjórar fyrir eina. Hversu heimskulegt er það? Af hverju má semja við einhvern í Danmörku en t.d. ekki Klíníkina í Ármúla sem gæti tekið þrefalt eða fjórfalt fleiri fyrir hvern og einn sem fer út í aðgerð?