152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

biðlistar eftir valaðgerðum.

506. mál
[17:08]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti: Hvað eru valaðgerðir? Við þurfum kannski að fara aðeins að breyta orðræðunni um að þetta séu einhverjar valaðgerðir eða valkvæðar aðgerðir. Er það val að fá bót meina sinna þegar einstaklingur kemst ekki fram úr rúminu, getur ekki sinnt daglegum þörfum sínum vegna áralangrar biðar á biðlista eftir liðskiptaaðgerð? Er það val þegar kona kemst ekki í vinnuna mánuðum og árum saman af því að hún er á biðlista eftir legnámi og á hreinlega á hættu að blæða út á meðan hún bíður? Er það val að komast ekki til að sinna sínum nánustu af því að maður er að bíða eftir augnsteinaaðgerð? Þetta er auðvitað ekkert val. Við þurfum einhvern veginn að fara að breyta þeirri hugsun að fólk hafi val um hvort það fer í þessar aðgerðir eða ekki. Okkur ber að tryggja þegnum landsins aðgengi innan ásættanlegs tíma, sem sagður er 90 dagar, og við erum ekki að standa við það. (Forseti hringir.) Það hefur ekkert með Covid að gera. Við höfum ekki staðið við þetta árum saman, (Forseti hringir.) löngu áður en heimsfaraldur reið yfir. Við þurfum bara að girða okkur í brók.