152. löggjafarþing — 74. fundur,  16. maí 2022.

biðlistar eftir valaðgerðum.

506. mál
[17:09]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Hildur Sverrisdóttir) (S):

Frú forseti. Ég vil fá að þakka kærlega fyrir þessa fínu umræðu. Það er ekki oft sem maður stendur í þessum sal og er sammála svo gott sem öllu sem hefur komið fram af hálfu fulltrúa ýmissa flokka. En það er vel. Það sýnir alvarleika málsins. Það finna allir og vita allir að hér er um grafalvarlegt mál að ræða og það er skylda okkar að finna eitthvað út úr þessari stöðu.

Mig langar að nefna sérstaklega að hv. þingmenn Guðbrandur Einarssonar og Helga Vala Helgadóttir komu mjög fallega inn á það að þetta heiti valaðgerðir er auðvitað ekki réttnefni. Það er hárrétt að þetta er ekki spurning um val hjá langflestum heldur brýna nauðsyn og hið opinbera á að nálgast það þannig.

Að því sögðu langar mig að fagna viðbrögðum hæstv. ráðherra. Ég heyri ekki betur en að hann hafi fullan vilja til að mæta þeirri áskorun sem felst í þessari stöðu. Mig langar þó að nefna að hann orðaði það á þann veg að staðan væri sú að sjúkrahúsin hefðu neyðst til að forgangsraða öðrum verkefnum. Þarna kemur inn örlítið mismunandi pólitísk sýn á málin en einhver, og t.d. sú sem hér stendur, myndi kannski segja: Og það er algjörlega eðlilegt. En til þess eru aðrir aðilar í okkar ágæta samfélagi sem geta gripið þau verkefni og þær aðgerðir sem falla ekki undir þá brýnu kjarnastarfsemi sem spítalarnir sinna. Ég held, eins og hefur verið komið inn á, að það myndi margt leysast átómatískt um leið og samið yrði við fleiri einkaaðila sem gætu gripið þessa bolta. Það var líka komið inn á þennan ótrúlega skrípaleik, þennan kostnaðarsama skrípaleik, sem það er að það er hægt að fara til útlanda frekar en uppi í Ármúla eða eitthvert annað. Það er ekki gott og við getum öll gert betur en svo. (Forseti hringir.)

Ég vil bara að lokum, forseti, þar sem hæstv. ráðherra talaði um hvað hann myndi gera ef hann brysti þolinmæðina, (Forseti hringir.) fá að hvetja hæstv. ráðherra til þess að missa þolinmæðina.