152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

starfskjaralög.

589. mál
[17:46]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér finnst athyglisvert að hlusta hér á ræðu hv. þingmanns, formanns efnahags- og viðskiptanefndar. Mér þætti fróðlegt að heyra hvort hv. þingmaður hafi sett fyrirvara við frumvarpið þegar það fór í gegnum þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Eins kannski þætti mér athyglisvert að heyra aðeins hvað hv. þingmaður sér í stöðunni núna. Það liggur fyrir að þetta ákvæði um févíti, þessi 14. gr., er eitthvað sem aðilar vinnumarkaðarins komu sér saman um. Þetta virðist vera aðferðafræði eða útfærsla sem bæði Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa. Það var fallist á það og það kemur sérstaklega fram í greinargerðinni að þetta ákvæði hafi verið í verið unnið í samráði við aðila vinnumarkaðarins. En þetta er atriði sem var lofað sérstaklega, launafólki var lofað því við undirritun lífskjarasamningsins 2019 að brugðist yrði við brotastarfsemi á vinnumarkaði með því að gera launaþjófnað refsiverðan. Ég man ekki nákvæmlega hvernig það var orðað í yfirlýsingu sem gefin var út við undirritun lífskjarasamningsins. En mig langar kannski aðeins að heyra frá hv. þingmanni hvaða leið hún sér út úr þessu, hvort hún telji nauðsynlegt til þess að hún geti stutt þetta frumvarp að það verði þá gerðar einhverjar róttækar breytingar á ákvæðinu um févíti, hvort hún sjái fyrir sér að það verði meiri hluti um þetta frumvarp hér í þinginu ef efni þess á að vera eins og það hefur verið lagt upp hér.