152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

starfskjaralög.

589. mál
[17:55]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að hér sé loksins mælt fyrir frumvarpi um aðgerðir gegn launaþjófnaði og gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði. Nú er það þannig að ríkisstjórnin gaf aðilum vinnumarkaðarins loforð um aðgerðir í þessa veru við undirritun lífskjarasamninga 2019. Það tókst ekki að efna þau loforð á síðasta kjörtímabili. Það var mikil óánægja meðal verkalýðshreyfingarinnar með þau frumvarpsdrög sem þá voru unnin í félagsmálaráðuneytinu. Þessi dráttur þegar kemur að því að samþykkja lög í þessa veru kom kannski einhverjum á óvart en ef til vill er hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir að einhverju leyti búin að varpa ljósi á það með gagnrýni sinni hér í dag hvers vegna þetta tafðist svona mjög á síðasta kjörtímabili. Það virðist ekki vera þverpólitísk sátt um það innan ríkisstjórnarflokkanna hvernig eigi að gera þetta, hvort og hvernig eigi að standa við þau loforð sem aðilum vinnumarkaðar voru gefin 2019.

Ég verð að segja að svona við fyrstu yfirferð líst mér talsvert betur á þetta frumvarp en það sem áður var í vinnslu í félagsmálaráðuneytinu og ég held að hafi reyndar aldrei verið lagt fram á þingi, þótt mér kunni að skjátlast. Ég hlakka til að lesa umsagnir frá stéttarfélögum og fleiri hagsmunaaðilum. Þetta frumvarp virðist ekki hafa farið í gegnum samráðsgáttina. Það hefði verið ágætt. Þótt t.d. févítisákvæðið sé samið í samráði við Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins hefði verið ágætt að fá þetta í gegnum samráðsgáttina til að fá inn fleiri og fjölbreyttari sjónarmið.

Samkvæmt rannsókn Alþýðusambands Íslands frá 2019 hafa kjarasamningsbrot færst mjög í aukana undanfarin ár. Stéttarfélögin fá nú fleiri og alvarlegri mál á borð til sín en áður. Brotin beinast einkum að hópum í viðkvæmri stöðu sem þekkja síður réttindi sín á vinnumarkaði og eiga erfiðara með að sækja rétt sinn, t.d. að erlendu starfsfólki, ungu fólki, tekjulágu fólki. Þetta eru kjarasamningsbrot sem eiga sér ýmsar birtingarmyndir. Launafólk er svikið um desemberuppbót, jafnaðarkaup er greitt langt undir taxta, fólk verður af orlofsgreiðslum og lögbundnum frídögum o.s.frv. Þegar atvinnurekendur eru staðnir að slíkum brotum tekur það oft launafólk marga mánuði, jafnvel ár, að fá kröfu innheimta. Það er í sjálfu sér bara tjón sem fólk verður fyrir, að það þarf að bíða eftir að fá umsamin laun. Í dag er það í rauninni þannig að fólkið ber sjálft kostnaðinn af þeirri bið. Efling stéttarfélag greindi frá því í fyrra að kröfum félagsins fyrir hönd félagsmanna hefði fjölgað úr 200 á hverju ári upp í um 700 á síðustu fimm árum. Þá hafði heildarupphæð krafnanna líka farið stighækkandi. Nú nemi hún mörg hundruð milljónum króna á ári. Það má gera ráð fyrir að þær kröfur sem eru innheimtar séu í rauninni toppurinn á ísjakanum því að það er bara hluti fólks sem er hlunnfarið um laun sem leitar réttar síns. Í dag leggst hvorki bótafjárhæð né sekt ofan á launakröfu þegar hún innheimtist og þetta er eitthvað sem verkalýðshreyfingin hefur bent á, að það vanti einfaldlega almennilegan fælingarmátt gagnvart þessari brotastarfsemi. Hvort frumvarpið sem hér er til umræðu dugar til. að skapa þennan fælingarmátt eða hvort hugsanlega þurfi að skerpa enn frekar á þessum ákvæðum er eitthvað sem við á þinginu þurfum að fara rækilega yfir að fengnum umsögnum o.s.frv. Það er alla vega alveg á hreinu að kjarasamningsbrot bitna ekki bara á launafólkinu sem er brotið gegn heldur bitna þau á samfélaginu öllu í formi tapaðra skatttekna, bjagaðar samkeppni og óheilbrigðs vinnumarkaðar. Það er löngu orðið tímabært að bregðast við og efna þau loforð sem gefin voru við undirritun lífskjarasamninganna og setja lög til að skapa mjög afgerandi fælingarmátt gegn launaþjófnaði og öðrum brotum á vinnumarkaði.