152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

starfskjaralög.

589. mál
[18:00]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir ræðu sína hér. Ég vil ítreka það, ég held að ég hafi ekki tekið það fram áðan, að vitaskuld viljum við ekki sjá brotið á launamönnum í þessu landi, ekki fyrir nokkra muni. Það sem ég var að draga fram áðan var að með þessu frumvarpi erum við að færa ákveðið hlutverk stéttarfélaga frá þeim yfir til hins opinbera. Þetta eftirlit er nú þegar í höndum aðila vinnumarkaðarins og mér er það til efs að þessar lagabreytingar séu launamönnum eða atvinnurekendum til bóta. Eini munurinn er sá að eftirlitið fer nú úr höndum stéttarfélaga, eins og ég sagði áðan, í hendur Vinnumálastofnunar sem mun að mínu mati fela í sér óþarfa fjölgun ríkisstarfsmanna með miklum kostnaði. Það má benda á að samkvæmt frumvarpinu hefur Vinnumálastofnun ekki eftirlit með launamönnum, þ.e. hvort þeir efni síðan sinn hluta samningsins, því að eins og við vitum öll gengur samningur á milli tveggja aðila í báðar áttir.