starfskjaralög.
Virðulegur forseti. Já, auðvitað væri hægt að sleppa þessum auknu opinberu umsvifum og mæla fyrir um hlutlæga bótareglu án þess að bæta við í þessari nefnd o.s.frv. og mæla þá fyrir um að atvinnurekandi sem brýtur gegn löglega umsömdum kjörum launamanns skuli greiða launamanni févíti sem nemur 80% eða 100% af höfuðstól gjaldfallnar kröfu. Það væri hægt að mæla fyrir um undanþágur þegar einhverjar málefnalegar, réttlætanlegar ástæður standi til annars. Það væri ein leið til að efna þessi loforð sem voru gefin, en myndi það ekki í rauninni vera enn þá meira íþyngjandi gagnvart atvinnurekendum? Er ekki einmitt sú leið sem verið er að fara í frumvarpinu til þess fallin að skapa ákveðið jafnvægi þarna á milli? Eða myndi Sjálfstæðisflokkurinn fara að styðja það að sett yrði inn févítisákvæði án þeirra fyrirvara og þeirrar útfærslu sem mælt er fyrir um í frumvarpinu, sem er í raun að búa til ákveðið ferli utan um þetta og svoleiðis? Það er auðvitað fróðlegt ef svo er. Ég hefði haldið einmitt að þessi 14. gr. frumvarpsins feli í sér ákveðna málamiðlun milli þessarar ýtrustu leiðar sem fæli í sér að það myndi skapast nánast sjálfkrafa réttur til launamanns og svo hins, að launamaður þyrfti einhvern veginn að fara með þetta í langt ferli og leita réttar síns. (Forseti hringir.) Ég vona að þetta sé skýrt sem ég sagði.