152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

starfskjaralög.

589. mál
[18:04]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið en ég er komin hingað til að fagna því að það eigi að taka á því samfélagsmeini sem félagsleg undirboð eða launaþjófnaður er á Íslandi. Það er mikilvægt að eftirlitið sé skilvirkt og tryggt verði að þeir einstaklingar sem brotið er á og vilja sækja rétt sinn njóti til þess stuðnings og hafi skjól, ekki aðeins verkalýðshreyfingarinnar heldur samfélagsins alls. Það getur ekki verið samningsatriði á milli aðila vinnumarkaðarins að vinnuveitendur komi fram við launþega af virðingu og virði lög og kjarasamninga. Því miður virðist sem svo að ljótum málum, sem ég vil kalla nútímaþrælahald, sé að fjölga og hafi fjölgað hér á undanförnum árum og tengdist sér í lagi uppgangi sem var í þjóðfélaginu og ekki síst í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Ódýra vinnuaflinu er ætlað að auka gróða fyrirtækjanna. Þrælar 21. aldarinnar vinna myrkranna á milli fyrir vasapening og þetta er ekkert annað en glæpur. Það er glæpur þegar fólk er rænt launum sínum og réttindum. Þetta er glæpur og eins og aðrir glæpir er þjófnaðurinn myrkraverk og það ætlar að reynast erfitt að uppræta hann. En það sem verra er er að fórnarlömbin eru hrædd við að tjá sig og eru í raun þau einu sem taka áhættu með glæpnum sem verið er að fremja á þeim. Fyrirtækin geta illu heilli bara borgað og haldið svo áfram og í versta falli skipta þau um kennitölu.

Fyrir ekki svo löngu síðan kynnti ég mér þessi mál ágætlega og ræddi við eftirlitsmenn á vegum stéttarfélaga um þessi mál og frásagnir þeirra eru sannarlega sláandi. Þegar ég spurði einn þeirra hvernig félagsleg undirboð birtust í hans landsvæði sagði hann: Ja, það er hægt að stela peningum af launamönnum með margvíslegum hætti. Hann nefndi nokkrar leiðir; að greiða ekki veikindadaga, fólk fær ekki frídaga eða lögbundinn hvíldartíma eins og því ber, það er hringlað með vaktaplan þannig að vaktaálag og yfirvinna er ekki greidd og fólk er jafnvel í sjálfboðavinnu. Fyrirtæki, ekki síst í landbúnaði og ferðaþjónustu, hafa í auknum mæli auglýst eftir erlendum sjálfboðaliðum til starfa upp á fæði og húsnæði. Þannig koma fyrirtækin sér hjá því að greiða kjarasamningsbundin laun og þar með skatta og aðrar skyldur. Þau fyrirtæki sem stunda launaþjófnað með margvíslega hætti halda eftir launum starfsmanna og styrkja samkeppnisstöðu sína gagnvart öðrum alvörufyrirtækjum sem fara að lögum og eru í samkeppni við fyrirtækin sem sniðganga lög og reglur og undirboðin grafa undan eðlilegum rekstri fyrirtækjanna. Það er dæmi um að nemar í óskilgreindu námi fá uppihald og ferðir en engin laun og það samræmist ekki íslenskum lögum. Óharðnaðir unglingar eru ráðnir sem verktakar á veitingahúsum og þeim talin trú um að það sé þeim fyrir bestu. Þeir gera sér ekki grein fyrir að þeir eru að taka þátt í að brjóta lög og raunar á sjálfum sér og sínum rétti. Svo eru dæmi um að fólk sé sent til Íslands til þess að biðja um hæli og vinna síðan svart fyrir engin eða lág laun í skjóli myrkurs.

Frú forseti. Vandamálið sem við erum að tala um hér og sem þarf að taka á og ég vona að þetta frumvarp, sem ég á eftir að lúslesa og fæ að vinna með í velferðarnefnd, taki á, er nútímaþrælahald og samfélagsmein sem við eigum að taka á í sameiningu. Þess vegna er eðlilegt að það sé opinber stofnun sem veitir fólkinu skjól sem verið er að brjóta á. Ég væri hissa á því og það kæmi mér á óvart þegar umsagnir koma ef Samtök atvinnulífsins eru ekki sammála þessu, því að fyrirtækin sem stunda þessa glæpi og svik við launamenn eru að troða sér með svindli fremst í röðina og bæta samkeppnisstöðu sína með því að brjóta á launamönnum. Ég vona að þetta frumvarp taki á þessu meini og ef ekki þá komi og verði samþykktar hér breytingartillögur í þingsal sem bæta stöðu launamanna hvað þetta varðar.