starfskjaralög.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmönnum kærlega fyrir þeirra innlegg í þessa umræðu sem ég held að sé mjög góð. Þetta er eitt af stóru málunum á vinnumarkaðnum, hvernig við getum nálgast það að koma í veg fyrir að fólk sé snuðað um laun sín. Þá held ég að það sé mikilvægt að við hugum sérstaklega að því að við hljótum öll að vera sammála um markmiðið, þ.e. að brot og brotastarfsemi á vinnumarkaði, félagsleg undirboð, er eitthvað sem við viljum ekki láta líðast á íslenskum vinnumarkaði.
Mig langar örstutt að nefna örfá atriði til að bregðast við umræðunni. Mig langar í fyrsta lagi að minna á varðandi samráðsnefndina sem hér hefur verið til umræðu að hún er í lögunum í dag, í lögum nr. 55/1980. Samráðsnefndin er til að tryggja sjálfstæði aðilanna. Það er hún er þeirra, aðilanna. Hún er ekki opinber nefnd, eins og sjá má á m.a. 6. gr. þessa frumvarps.
Ég vil líka nefna það að hér er kannski ekki um bein lögfræðileg álitamál að ræða sem koma til samráðsnefndarinnar heldur túlkun kjarasamninga og á nokkrum stöðum í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að hægt sé að vísa málum til samráðsnefndarinnar einmitt vegna þess að hún er skipuð aðilum vinnumarkaðarins, ekki hins opinbera. Þar með er verið að halda í það grundvallarstef að það séu einmitt aðilar vinnumarkaðarins sem leitist til við að leysa ágreiningsefni sín á milli. En á sama hátt er hér verið að gera Vinnumálastofnun kleift að koma inn í málin þegar ekki er verið að greiða rétt laun. Hennar hlutverk sé þá að sjá til þess eða reyna að koma því til leiðar að greidd verði rétt laun í samræmi við 5. gr. laganna. Ég vil ekki meina að við séum að setja á fót opinbert eftirlit með launakjörum. Við erum að gefa Vinnumálastofnun færi á því — við erum að segja: Vinnumálastofnun, opinber stofnun, á að fá auknar heimildir til að koma réttum launum á þar sem þau hafa ekki verið, þar sem verið er að stela af fólki.
Mig langar líka að nefna eitt mikilvægt atriði í þessu samhengi og það er 7. gr. sem fjallar um upplýsingaskyldu atvinnurekenda, það er nýmæli þar sem atvinnurekanda ber ávallt að hafa tiltæk gögn sem sýna fram á hvaða laun hann hefur greitt starfsmönnum sínum á hverjum tíma, upplýsingar um vinnutíma starfsmanna og önnur gögn er varða kjör þeirra, þar með talið launaseðla og staðfestingu á því að laun starfsmanns hafi verið greidd í samræmi við það sem kemur fram á launaseðli.
Mig langar rétt aðeins að nefna líka varðandi févíti, þ.e. vegna brotastarfsemi. Ég held að þar séum við að stíga mikilvægt skref. Ég efast ekki um það og ég veit að það eru skiptar skoðanir á akkúrat þessu. Við höfum heyrt þær skoðanir endurspeglast í umræðunni hér í dag og það er bara vel, en ég tel að það sé mikilvægt að þegar brot eiga sér stað, þegar launum er stolið af launamanni eða launafólki þá eigi að geta komið til greiðslur sem renna til launamannsins en ekki til hins opinbera. Ef við setjum þetta bara í víðara og stærra samhengi: Hvers vegna erum við að þessu? Jú, við erum auðvitað að þessu til að reyna að tryggja að fólk fái borguð kjarasamningsbundin laun, að fólk geti greitt leiguna sína, keypt mat en þurfi ekki að taka lán fyrir slíku og þetta er liður í að tryggja slíkt.