starfskjaralög.
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. félagsmálaráðherra hvort hann hefði sjálfur verið hlynntur því að setja lög um hlutlæga bótareglu í samræmi við það sem verkalýðshreyfingin hafði kallað hvað mest eftir. Ég spyr hvort honum finnist þetta frumvarp ekki fela í sér of mikla útvötnun á því sem aðilar vinnumarkaðarins, og einkum verkalýðshreyfingin, bjuggust við þegar lífskjarasamningurinn var undirritaður og hvort hann sé hlynntur því að sú leið verði farin að lögfesta hlutlæga bótareglu. Ég spyr líka hvers vegna vikið hafi verið frá því sem var þá væntanlega lagt upp með í lífskjarasamningum, að fara þá leið.