starfskjaralög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil svara þessu með tvennum hætti. Auðvitað er það eitthvað sem er eðlilegt að skoða en þó verður að vera hægt að skilja á milli brota og mistaka og það er sú leið sem farin er í févítisákvæðinu. Hér er auðvitað um að ræða niðurstöðu sem verður til þar sem verið er að reyna að verða við mörgum óskum og mismunandi skoðunum. Ég held þess vegna að sú lausn sem þarna var fundin sé eitthvað sem eðlilegt sé að leggja fram. Ég er þeirrar skoðunar, ekki síst vegna þess að þetta er það sem varð niðurstaðan hjá þeirri nefnd sem vann frumvarpið.