starfskjaralög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Bara þannig að það sé sagt þá er þetta ekki í fyrsta skipti sem ég mæli fyrir frumvarpi og einhverjir þingmenn eru ekki nákvæmlega sammála því sem fram kemur í því. Ég hef lagt fram talsvert mörg mál á Alþingi sem hafa farið í gegnum þingflokka stjórnarmeirihlutans með fyrirvörum. Flest þeirra mála hefur okkur tekist að klára hér á þingi og ég vonast til þess að þetta sé eitt þeirra. Ég er ekki sammála öllu því sem fram kom í máli 1. þm. Suðurk., svo það sé sagt.