152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

útlendingar.

595. mál
[19:21]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það blasir auðvitað við öllum sem vel þekkja til, sem ég efast ekki um að hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir geri, hún hefur runnið í mörg ár í þessum málaflokki og hefur mjög víðtæka þekkingu á honum, og blasir auðvitað við við lestur þessa frumvarps hvar þau ákvæði liggja sem verða til þess að auka skilvirkni í afgreiðslu þessara mála. Það er kannski óþarfi að fara að telja þau öll upp í stuttri ræðu. Ég hef hér mínútu.

Málsmeðferðartíminn verður styttri vegna þess að allt ferlið verður einfaldara. Það beinist fyrst og fremst að því að leysa umsóknir þeirra inn í framtíðina sem vissulega eru í brýnni þörf fyrir vernd, þeirra sem eru í bráðri hættu, þeirra sem eiga hér heima, á grundvelli þeirra ákvæða sem vernd fjallar um. Við fáum allt of mikið af umsóknum þar sem umsókn um vernd á hreinlega ekki við (Forseti hringir.) af mörgum skilgreindum ástæðum. Þannig mun þessi (Forseti hringir.) málsmeðferðartími styttast og verða skilvirkari.