152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

útlendingar.

595. mál
[19:32]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir mjög skýr svör við seinni spurningu minni um hvort haft hafi verið samráð við hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra. Ég skil hæstv. dómsmálaráðherra þannig að sátt ríki um þessar breytingar á 33. gr., þessa niðurfellingu á þjónustu, og að haft hafi verið samráð um það við hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, að það ríki bara sátt um þetta í ríkisstjórn. Þá vil ég fá að spyrja aftur fyrri spurningar minnar: Hvers vegna er það hæstv. dómsmálaráðherra en ekki hæstv. félagsmálaráðherra sem mælir fyrir þessari breytingu þegar það liggur fyrir að félagsmálaráðherra er um leið að mæla fyrir hinum ýmsu breytingum á lögum um útlendinga? Hvers vegna? Hvers vegna kemur það sérstaklega í hlut dómsmálaráðherra þegar það er algerlega óumdeilt að þetta atriði heyrir undir málefnasvið félagsmálaráðherra en ekki dómsmálaráðherra?