152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

útlendingar.

595. mál
[19:38]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég ætla að taka undir það sem fram kom í máli hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar. Það eru fleiri ákvæði í þessu frumvarpi sem ekki heyra undir verkefnasvið hæstv. dómsmálaráðherra. Þar er m.a. um að ræða breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Það er augljóst hvers vegna því er klastrað inn í þetta frumvarp; það er vegna þess að það á að nota þá ágætu breytingu sem snýst um að fólk með dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi geti fengið að vinna án þess að sækja um sérstakt leyfi. Það er algjört lykilatriði að sá ráðherra sem ber ábyrgð á þeim málaflokkum sem við erum að ræða sé hér í húsi. Ég vil bara taka undir þetta en jafnframt benda á að forgangsröðunin er með þeim hætti að verið er að taka þetta fram fyrir mál þar sem þetta jákvæða ákvæði er inni.