útlendingar.
Virðulegur forseti. Það má vera að hér sé einhver misskilningur á ferðinni, ég ætla ekkert að útiloka það. Um hitt er enginn misskilningur, sem málshefjendur hér voru kannski með sem sitt aðalatriði, þ.e. að kalla félagsmálaráðherra til þessarar umræðu vegna þeirrar ábyrgðar sem hann ber á því sem rakið var hér, að þegar þjónustunni lýkur að 30 dögum liðnum frá því að niðurstaða er fengin — að það væri á hans forræði, eins og haldið var fram, m.a. af hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur. Það er ekki svo. Dómsmálaráðuneytið tekur við þeirri þjónustu þegar niðurstaða er fengin hjá Útlendingastofnun og úrskurðarnefnd útlendingamála og viðkomandi er á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins þar til viðkomandi er farinn úr landi eða brottflutningur hefur getað farið fram.