útlendingar.
Virðulegi forseti. Hér fyrir nokkrum árum, örfáum vikum eftir að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við, barst tilkynning til félagsmálayfirvalda vegna útlendinga í neyð eftir að barnafjölskylda var á grundvelli nýrrar reglugerðar Sigríðar Andersen svipt framfærslu og þjónustu. Hér í dag ræðum við frumvarp sem snýst m.a. um að festa það í sessi að útiloka umsækjendur um alþjóðlega vernd frá grunnþjónustu eftir að hafa fengið lokasynjun. Í þessu felst m.a. að börn verða af réttindum, barnshafandi konur verða sviptar þjónustu, alvarlega veikir einstaklingar líka, fatlaðir einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir, þessir hópar verða sviptir framfærslu og húsnæði, réttindum skv. 33. gr. útlendingalaga sem félagsmálaráðherra ber ábyrgð á en treystir sér ekki til að vera hérna í salnum með okkur (Forseti hringir.) að ræða um.
Spurning mín til hv. þingkonu Vinstri grænna er nú bara þessi: Er hún stolt (Forseti hringir.) af þessu ríkisstjórnarsamstarfi í dag? Er þetta í alvörunni þess virði? Helgar tilgangurinn (Forseti hringir.) í alvörunni meðalið?