útlendingar.
Frú forseti. Ég vil bara segja að auðvitað gengur á ýmsu þegar maður er í pólitík og þegar maður er í fjölflokka meirihlutasamstarfi og auðvitað þarf að gera málamiðlanir. Það er bara það sem þarf að gera ef maður er tilheyrir ekki stjórnmálahreyfingu sem hefur yfir 50% atkvæðanna. Ég skal bara vera heiðarleg með það að málin eru miserfið og þau eru mörg hver flókin. Þannig er heimurinn, þannig er lífið þegar maður er að taka þátt í pólitík og sér í lagi þegar maður nýtur þeirra forréttinda að fá að tilheyra flokki sem er í ríkisstjórn. En ég vil, frú forseti, bara að nefna það að í frumvarpinu kemur fram:
„Þó er ekki heimilt að fella niður réttindi barna, foreldra eða umsjónarmanna þeirra og annarra heimilismanna sem teljast til ættingja barna, barnshafandi kvenna, alvarlegra veikra einstaklinga …“
Þannig að um þetta er alveg fjallað í þessari grein sem hv. þingmaður minntist á, en ég tel að það sé algerlega þess virði að hún sé skoðuð, útfærslan á henni.