útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar. Eitt sem truflar mig sérstaklega við þennan málflutning hæstv. ráðherra, og það verður fróðlegt að fá svör við því ef hann ætlar að súmmera upp umræðuna á eftir, er í rauninni það að í 8. mgr. 33. gr. segir orðrétt:
„Þegar Útlendingastofnun hefur hafnað umsókn ríkisborgara EES- eða EFTA-ríkis um alþjóðlega vernd á hann ekki rétt á þjónustu samkvæmt grein þessari.“
Ef við skoðum svo lögskýringargögnin um þetta þá er talað um að þarna sé að finna sérreglu varðandi EES- og EFTA-ríkisborgara sem sækja um alþjóðlega vernd, að þeir eigi ekki rétt á þjónustunni samkvæmt þessari 33. gr., sem segir okkur auðvitað að almennt hefur þessi grein verið hugsuð þannig að hún eigi við bæði fyrir og eftir að umsóknum er synjað og þannig hefur hún verið túlkuð eftir því sem ég best veit í framkvæmdinni. Þess vegna er það svo vitlaus málflutningur að láta eins og þessi grein hætti bara að eiga við um fólk samkvæmt gildandi lögum um leið og fólk hefur fengið synjun. Það er vissulega þannig samkvæmt þeim breytingum sem hæstv. ráðherra finnur sig knúinn til að leggja fram í þessu frumvarpi. Þar er verið að mæla fyrir um það í 1. gr. laganna að gerður verði skýr greinarmunur á útlendingum annars vegar og umsækjendum um alþjóðlega vernd hins vegar. Ástæðan fyrir því að ástæða þykir til að mæla fyrir um það í þessu frumvarpi er auðvitað sú að lögin hafa ekki verið túlkuð þannig hingað til. Þess vegna ítreka ég ákall mitt til hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra um að koma hingað og taka þátt í umræðunni um málefni sem falla undir hans eigin málefnasvið.