152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

útlendingar.

595. mál
[23:55]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú hefur hv. þingmaður gott tækifæri til að ræða þetta atriði áfram, ég vildi einmitt ræða þetta við hv. þingmann. Þetta gengur einmitt út á þessar auknu kröfur sem hljóta að vera gerðar til yfirvalda um að meta aðstæður fólks og meta aðstæður í þeim löndum sem nú á allt í einu að vera hægt að senda fólk til, sem hefur ekki verið hægt áður. En ekki er að finna neinar auknar kröfur um það í frumvarpinu, hvergi er gert ráð fyrir að fram fari einhvers konar aukið mat eða að einhvers konar önnur málsmeðferð sé notuð til að meta aðstæður í umræddum löndum. Við höfum séð það í þeirri gagnrýni sem hefur komið fram frá Rauða krossinum — og ég tel raunar að það sé ein höfuðástæða þess að Rauði krossinn missir sinn samning, þ.e. hvað hann hefur verið sterkur og skýr og góður málsvari fólks á flótta, hvað starfsmenn hans hafa öðlast langa reynslu í að verja réttindi fólks á flótta, hvað þeir eru með mikið stofnanaminni. Rauði krossinn veit hvernig komið hefur verið fram við þennan hóp og getur þar af leiðandi talað af raunsæi og þekkingu og því á að útiloka hann frá áframhaldandi vinnu við þennan málaflokk. Það á að sjá til þess að hann sendi ekki fleiri frábærar umsagnir eins og þá sem hann var að senda. Það hefur komið mjög skýrt fram í gagnrýni Rauða krossins ár eftir ár, í hvert skipti sem þetta frumvarp, þetta ógeðsfrumvarp, hefur verið lagt fram, að Útlendingastofnun sinnir ekki rannsóknarskyldu sinni.

Það má alveg gagnrýna þá stofnun fyrir það. Það má líka gagnrýna hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að vera ekki búinn að taka til í þeirri stofnun og tryggja að rannsóknarregla sé virt. Og auðvitað má gagnrýna þessa ríkisstjórn fyrir að vera fjandsamleg fólki á flótta, fyrir að leiða þá stefnu sem Útlendingastofnun fylgir. Það er borin von að halda að Útlendingastofnun sé að fara að uppfylla einhverja nánari rannsóknarreglu en þá sem Rauði krossinn hefur ítrekað bent á að sé ekki einu sinni uppfyllt í venjulegum tilvikum. Ég spyr hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér í því.