útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Ég tel afskaplega litla skilvirkni að finna í þessu frumvarpi sem kemur líka inn á það sem hv. þingmaður var að nefna í tengslum við það sem óskilvirknin leiðir af sér, sem er gjarnan aukinn kostnaður. Í umræðum um fjárlög fyrr á þessu þingi beindi ég fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra um það hvort ekki væru einhverjar fyrirætlanir um að skera niður í þessum málaflokki þar sem ákveðnum aðilum hér á þessu þingi er tíðrætt um að við séum að eyða allt of miklum peningum í þennan málaflokk, sem ég er sammála, sem mörgum kemur á óvart, vegna þess að peningarnir fara ekki í góða hluti. Þeir fara í akkúrat þetta, óskilvirkni við að reyna að koma fólki úr landi. Svar hæstv. ráðherra var: Nei, það stendur ekkert til að skera niður, það stendur ekkert til að spara, sem afhjúpar aftur að markmiðið með þessum lögum, markmiðið með þessum lagabreytingum, markmiðið með því kerfi sem hér er verið að hanna og endurhanna og teikna upp aftur og aftur með nákvæmlega sömu grundvallargöllunum snýst hvorki um skilvirkni né betri nýtingu fjármuna okkar. Það snýst ekki um mannúð sem er orð sem kemur merkilega oft fyrir í lögum um útlendinga þó að þar fari minna fyrir því í framkvæmd.
Þannig að mig langar til að spyrja hv. þingmann, eða kannski bara velta upp akkúrat því hvort hægt sé að halda því fram að við séum að verja okkar dýrmætu sjóðum í þá hluti sem við eigum að vera að eyða peningum í, með því að vera stanslaust að moka meira og meiri peningum í að koma fólki í verri aðstæður en það var áður en það kom hingað.