152. löggjafarþing — 76. fundur,  17. maí 2022.

útlendingar.

598. mál
[14:13]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Um leið og málsmeðferð er lokið á þeim stjórnsýslustigum sem til þess taka, þ.e. málsmeðferð hjá Útlendingastofnun og síðan hjá úrskurðarnefnd útlendingamála, og viðkomandi umsækjandi hefur fengið synjun um vernd hér á landi þá er honum tryggð þjónusta í allt að 30 daga. Viðkomandi umsækjandi eða útlendingur er þá í raun á forræði dómsmálaráðuneytisins. Eftir 30 daga falla niður öll réttindi til félagslegrar þjónustu og það er innan þess tíma sem talið er, og eðlilegt er, að viðkomandi hafi farið af landi brott. Algengur tími í því er kannski í kringum vika og þá að hámarki 30 dagar og þá falla öll réttindi niður, nema í undantekningartilfellum, sem talin voru upp í frumvarpinu sem við fjöllum hér um í gærkvöldi, sem taka til margra þátta þeirra skilyrða, svo sem konur sem eru óléttar, börn og fjölskyldur þeirra, þeir sem eru sjúklingar og eiga ekki gott með að ferðast og þeir sem eru hreyfihamlaðir og geta ekki fengið þá þjónustu sem þeim er nauðsynleg. Það eru því fyrirvarar í þessu. Einnig er sá fyrirvari gerður að ef eðlilegar skýringar eru á því að brottflutningur hefur tafist, til að mynda ef verið er að bíða eftir staðfestingu á pappírum frá erlendum stjórnvöldum, þá er horft til þess og þjónustan framlengd. Þjónustan er því veitt í ákveðinn tíma og síðan fær þetta fólk náttúrlega stuðning til að fara af landinu. Bæði eru greidd fyrir það fargjöld og farareyrir (Forseti hringir.) og stuðningur til að koma sér fyrir á nýjum stað.