152. löggjafarþing — 76. fundur,  17. maí 2022.

útlendingar.

598. mál
[14:15]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef fullan skilning á að það sé örlítið ryk hjá okkur hæstv. ráðherra því að við vorum jú hér fram á nótt að ræða saman. En ég var ekki að spyrja hæstv. ráðherra út í frumvarpið sem við vorum að ræða í gær, ég var að vísa í umræðuna í gær út af því máli sem við erum að fjalla um hér. Það kom mér á óvart að hæstv. ráðherra skyldi segja að dómsmálaráðherra og ráðuneytið annist þjónustu við umsækjendur um vernd í 30 daga eftir að einstaklingur er ekki lengur skilgreindur sem umsækjandi um vernd heldur útlendingur. Ég var að spyrja hæstv. ráðherra út í það þegar einstaklingur er eftir 30 dagana útlendingur í neyð. Hver ber þá ábyrgð á þjónustunni? Það er sannarlega ekki dómsmálaráðuneytið, eins og hæstv. dómsmálaráðherra sagði, af því að það er jú verið að færa alla þjónustu yfir til félags- og vinnumarkaðsráðherra. Þegar einstaklingur er ekki lengur umsækjandi um vernd og eftir að 30 dagarnir eru liðnir, eru það sveitarfélögin sem bera ábyrgð á þjónustu við umræddan einstakling, þ.e. eins og lögin gera ráð fyrir, að hann flokkist þá sem útlendingur í neyð? Eru það sveitarfélögin sem bera eftir þetta ábyrgð? Á að koma útlendingnum til aðstoðar eins og öðrum útlendingum sem hér eru í neyð? Er það þannig og þarf þá ekki að gera ráð fyrir því í kostnaðargreiningu?