152. löggjafarþing — 76. fundur,  17. maí 2022.

útlendingar.

598. mál
[14:19]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að spyrja aðeins út í þá heimild sem lagt er til að veita til vinnslu persónuupplýsinga. Í fyrsta lagi vil ég spyrja hvort félagsmálaráðuneytið komi almennt að vinnslu persónuupplýsinga og hvort það sé þá nýtt hlutverk fyrir það að vera ábyrgðaraðili slíkrar vinnslu. Væntanlega er það hugmyndin og síðan gæti ráðuneytið kannski framselt ábyrgð á vinnslu til þeirra aðila sem fara með framkvæmd 27. og 33. gr., eins og breytingin í 1. gr. kveður á um.

En það sem mig langar að spyrja sérstaklega út í er um hvaða aðila er að ræða, stjórnvald sem fer með framkvæmd 27. gr. samkvæmt orðanna hljóðan í þessu frumvarpi. Ef við skoðum síðan 27. gr. sjálfa þá stendur að ráðuneytið geti eftir atvikum falið viðeigandi stofnun, sveitarfélagi, félagasamtökum eða öðrum rekstur móttökumiðstöðvar. Þarna hnýt ég um tvennt. Annars vegar eru félagasamtök eða aðrir ekki stjórnvöld, myndi ég halda. Er þetta orðalag óþarflega ónákvæmt í frumvarpinu? Og hins vegar: Er það ekki allt of opið að vera að búa til heimild í útlendingalögum til vinnslu persónuupplýsinga til „eða annarra“? Er það ekki allt of opið?