útlendingar.
Virðulegur forseti. Vegna þess að ráðherrann segir hér að Persónuvernd hafi ekki gert athugasemdir við þetta þá hnýt ég einmitt um það í greinargerð frumvarpsins að það er ekkert minnst á mat á áhrifum á persónuvernd. Það er ekkert minnst á að Persónuvernd hafi komið að gerð þessa frumvarps. Mig langar að spyrja ráðherrann sem fer með málaflokk persónuverndar hvort stofnunin hafi ekki komið að þessu frumvarpi. Alveg óháð því hvernig framkvæmdin hefur verið í fyrri tíð þá hlýtur að þurfa að skoða hvert einasta frumvarp sem snertir á viðkvæmum persónuupplýsingum.
Ráðherrann segir að það sé stjórnvaldsins sem gerir samninginn um framkvæmd 27. gr. að tryggja að vel sé búið um öryggi persónuupplýsinganna. Vandinn er að af orðanna hljóðan í frumvarpinu þá er stjórnvald sem fer með framkvæmd miklu meira en bara það. Þá eru það félagasamtökin eða aðrir, eða geta verið það. Þetta truflar mig dálítið þegar litið er á 3. mgr. 17. gr. þar sem þessum stjórnvöldum er bætt inn sem fara með framkvæmd. 3. mgr. 17. gr. laganna verður þess efnis að fái ýmsir aðilar, þar á meðal stjórnvaldið sem fer með framkvæmd 27. gr. laganna, upplýsingar sem gætu falið í sér hugsanlegt lögbrot, beri viðkomandi að upplýsa lögreglu eða hlutaðeigandi stjórnvald um málið og afhenda þau gögn sem hún gæti krafist. Er þetta bara við framkvæmd 27. gr. eða er þetta almennt? Myndi þetta þýða t.d. að ef Rauði krossinn á Íslandi gerði samning um framkvæmd 27. gr. og kæmist síðan að lögbroti við einhverja ótengdar aðgerðir — erum við að opna á að það sé einhver afhendingarskylda þar?
Ég hef áhyggjur, herra forseti, bæði af því að það virðist ekki í þessu frumvarpi vera gert sérstakt mat á áhrifum á persónuvernd, og af því að stjórnvöldin sem fá þessi völd séu allt of vítt skilgreind.