152. löggjafarþing — 76. fundur,  17. maí 2022.

útlendingar.

598. mál
[14:24]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef sem dómsmálaráðherra setið nokkra fundi með starfsbræðrum mínum í Evrópu, af Schengen-svæðinu og reyndar víðar í Evrópusambandinu. Þar hafa m.a. komið fram ítrekað, og er svo sem ekkert nýtt, verulegar áhyggjur af því að verið sé að misnota menntakerfið og að það fylgi því þá það sem við köllum lögbrot. Ég held að það sé bara hin almenna regla heiðvirðra borgara að ef þeir verða vitni að lögbrotum eða hafa upplýsingar um lögbrot sé eðlilegt að reikna með því að þeir tilkynni það til lögreglu. Það er hin almenna regla. Það á jafnt við um starfsmenn hins opinbera eða þá sem taka að sér verkefni á þeirra vegum, eins og okkur sem almennra borgara.

Að öðru leyti varðandi það sem snýr að persónuvernd í þessu máli þá felur frumvarpið ekki í sér, eins og ég kom inn á í framsöguræðu minni, efnislegar breytingar á réttindum og skyldum umsækjenda um vernd heldur einungis breytingar á því hvaða stjórnvald ber ábyrgð á að veita réttindi. Að því leyti hefur ekki þurft að leita til Persónuverndar sérstaklega í þessu tilfelli þar sem ekki er verið að breyta neinu sem snýr að umsækjendunum sjálfum heldur einungis því stjórnvaldi sem fer með málsmeðferðina. Á fyrri stigum hefur Persónuvernd komið að þessum málum og hafa engar athugasemdir verið gerðar við það fyrirkomulag sem viðhaft er og það mun ekkert breytast við framlagningu þessa frumvarps eða löggildingu þess.