152. löggjafarþing — 76. fundur,  17. maí 2022.

skipulagslög.

573. mál
[16:46]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum er varðar uppbyggingu innviða. Frumvarp sama efnis var lagt fram af umhverfis- og auðlindaráðherra á 151. löggjafarþingi en náði ekki afgreiðslu. Frumvarpið byggir á tillögu starfshóps sem skipaður var í tengslum við vinnu átakshóps um úrbætur á innviðum í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið í desember 2019. Tillaga starfshópsins var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Einnig voru áform um lagasetninguna og drög að frumvarpinu kynnt í samráðsgátt stjórnvalda áður en frumvarp var lagt fram á 151. löggjafarþingi. Jafnframt hefur verið unnið úr þeim umsögnum sem bárust við umfjöllun frumvarpsins á því þingi. Gerðar hafa verið minni háttar breytingar á fáeinum ákvæðum frumvarpsins frá síðustu framlagningu sem nánar er gerð grein fyrir í greinargerðinni sem fylgir frumvarpinu.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á græna orkuframleiðslu og þá sér í lagi í tengslum við orkuskipti. Í þeim tilgangi þarf að treysta betur flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Því er mikilvægt að hraða eins og kostur er stjórnsýslumeðferð ákvarðana sem tengjast línulögnum.

Fárviðri gekk yfir Ísland í desember 2019, 10. desember, að mig minnir, og olli miklu tjóni. Samgöngur lögðust af og atvinnulífið lamaðist á þeim svæðum sem urðu verst úti. Miklar truflanir urðu í flutnings- og dreifikerfi rafmagns sem hafði afleidd áhrif á fjarskiptakerfi og leiddi til sambandsleysis við umheiminn á stórum svæðum. Í kjölfarið skipaði þáverandi ríkisstjórn átakshóp með fulltrúum sex ráðuneyta sem ætlað var að meta hvaða aðgerðir væru færar til að efla innviði í flutnings- og dreifikerfi raforku og fjarskiptum auk þess að skoða dreifikerfi RÚV og huga að samgöngum og byggðamálum á breiðum grunni.

Eitt af því sem átakshópnum var falið að taka til umfjöllunar og úrvinnslu voru fyrirliggjandi tillögur um einföldun leyfisveitingaferla vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku, en bent hefur verið á að flókið lagaumhverfi hafi hugsanlega valdið töfum á undirbúningi slíkra framkvæmda síðustu árin og þar með tafið nauðsynlega uppbyggingu raforkukerfisins.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á skipulagslögum, nr. 123/2010, í tengslum við uppbyggingu flutningskerfis raforku þegar um er að ræða framkvæmdir í flutningskerfi raforku sem ná yfir fleiri en eitt sveitarfélag. Lagt er til að lögfest verði heimild til að taka sameiginlega skipulagsákvörðun sem nái til einnar framkvæmdar í flutningskerfi raforku sem er áformuð í tveimur eða fleiri sveitarfélögum. Slíkar framkvæmdir geta við núgildandi löggjöf kallað á breytingar á aðalskipulagi og útgáfu framkvæmdaleyfis frá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Ef svæðisskipulag er til staðar kann einnig að þurfa að gera breytingar á því með aðkomu allra þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að því. Þannig er aukin skilvirkni í því að heimila töku einnar sameiginlegrar skipulagsákvörðunar fyrir framkvæmd af þessu tagi.

Í frumvarpinu er, eins og áður segir, lagt til að lögfest verði heimild til að taka sameiginlega skipulagsákvörðun um framkvæmdir í flutningskerfi raforku þvert á sveitarfélagamörk. Slík sameiginleg skipulagsákvörðun verði í höndum sérstakrar raflínunefndar sem skipuð verði fulltrúum allra þeirra sveitarfélaga sem viðkomandi skipulagsákvörðun á að ná til. Í nefndinni eigi einnig sæti fulltrúi Skipulagsstofnunar til að tryggja fagþekkingu, bæði gagnvart skipulagsgerð sem og mati á umhverfisáhrifum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdaraðili hafi frumkvæði að því að óska eftir að ráðherra skipi slíka nefnd. Beiðni framkvæmdaraðila skal koma fram á undirbúningsstigi framkvæmdar og áður en formlegt ferli, samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, er hafið. Meginhlutverk raflínunefndar verður að undirbúa og samþykkja skipulagsákvörðun vegna viðkomandi framkvæmdar, gefa út sameiginlegt framkvæmdaleyfi og hafa yfirumsjón með eftirliti með framkvæmdinni. Skipulagsfulltrúar viðkomandi sveitarfélaga annast eftirlit með framkvæmdinni í umboði og á grundvelli samstarfssamnings við raflínunefnd. Hvað varðar kostnað við gerð skipulags og útgáfu framkvæmdaleyfis er gert ráð fyrir að framkvæmdaraðili standi undir honum með þjónustugjaldi.

Skipulagsstofnun mun, í umboði nefndarinnar, annast verkefnastjórn og samskipti við framkvæmdaraðila. Framkvæmd umhverfismats framkvæmda verður formlega óbreytt en umhverfismatið unnið samhliða og samþætt undirbúningi skipulagsákvörðunar. Gagnvart framkvæmdaraðila, almenningi, hagsmunaaðilum og samráðsaðilum verði ein sameiginleg ásýnd og samskiptaleið. Á ensku hefur þetta verið kallað „one stop shop“. Með slíkri sameiginlegri skipulagsákvörðun, um framkvæmdir í flutningskerfi raforku, mun gefast betra tækifæri en áður til að leggja heildstætt mat á einstaka jarðstrengskafla, sbr. 9. tölulið þingsályktunar nr. 26/148, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, og verður það gert á vettvangi raflínunefndar. Í auglýsingu tillögu að raflínuskipulagi verður aðalvalkostur auglýstur en jafnframt gerð grein fyrir öðrum valkostum. Gert er ráð fyrir að raflínunefnd geti breytt skipulagstillögu í samræmi við niðurstöðu umhverfismats við endanlega afgreiðslu hennar, enda hafi verið gerð grein fyrir viðkomandi valkosti í umhverfismatsferlinu. Á grundvelli raflínuskipulags og niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum er gert ráð fyrir að raflínunefnd gefi út sameiginlegt framkvæmdaleyfi. Ef nefndin kemst ekki að sameiginlegri niðurstöðu er lagt til að málinu skuli vísað til innviðaráðherra sem taki þá ákvörðun um val á valkosti og þau skilyrði sem framkvæmdin skal háð samkvæmt skipulagi.

Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umr.