um fundarstjórn.
Herra forseti. Mig fer að gruna að það sé engin tilviljun að Útlendingastofnun haldi þessum umsóknum um ríkisborgararétt kerfisbundið frá Alþingi vegna þess að þarna er undir fólkið sem leitar ásjár Alþingis vegna þess að það kemst ekki í gegnum nálaraugað sem er búið að sníða með lögunum. Og mig fer að gruna að Útlendingastofnun kunni ekki að meta það að við hleypum þessu fólki inn. Alveg eins og það er verið að breyta útlendingalögum svo það sé auðveldara að endursenda fólk án þess að það festi hér rætur og eignist vini sem tala máli þeirra þá er hér verið að vinna fast að því að hjáleiðin fram hjá stjórnsýsluafgreiðslunni lokist einmitt til þess að þingið hætti alltaf að sýna þessa mannúð, sem við gerum hér tvisvar á ári gagnvart fólki vegna þess að það þurfti að flýja heimaland sitt (Forseti hringir.) og er kannski ekki með öll tilskilin vottorð til að komast í gegnum Útlendingastofnun. Þessi mannúð, (Forseti hringir.) sem Alþingi sýnir tvisvar á ári, er greinilega eitur í beinum Útlendingastofnunar sem stendur ítrekað (Forseti hringir.) í vegi fyrir því að við sýnum hana.