um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég held að það fari ekki vel á því að hv. þingmenn komi hér upp í þetta virðulega ræðupúlti og geri einhverja grýlu úr opinberum starfsmönnum hjá stofnunum sem eru að vinna sína vinnu. Það er rétt að við höfum ekki fengið yfirferð yfir allar umsóknir um ríkisborgararétt og við þurfum á því að halda og við þurfum að fá slíkar upplýsingar. En það er ekki þannig að Útlendingastofnun neiti að afhenda gögn. Afstaða Útlendingastofnunar hefur verið, og það er í raun afstaða hæstv. ráðherra, að umsóknirnar skuli vinnast í tímaröð. Það er afstaðan, bara svo því sé til haga haldið. Það verklag aftur á móti sem Útlendingastofnun tók upp hentar ekki alveg inn í þann farveg sem allsherjar- og menntamálanefnd hefur haft varðandi veitingu ríkisborgararéttar í gegnum Alþingi. Við þurfum að finna betri leið til þess að geta veitt ríkisborgararétt í gegnum Alþingi og (Forseti hringir.) það er enginn sem hefur í hyggju að leggja þá aðferð af. En við þurfum að breyta verklagi í kringum það.