um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það sem hér hefur komið fram um að það er orðið löngu tímabært, eins og við vitum öll hér inni, að höggva á þennan hnút. Þótt margt hafi verið ágætt í máli hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, sem er formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og í þeirri nefnd sit ég einnig þannig að ég hef fylgst aðeins með þessu máli þar, um að við þurfum að finna okkur eitthvert nýtt verklag — við megum ekki gleyma því að það er stofnun sem er í raun og veru að þvinga þingið inn í nýtt verklag. Það eru bara tveir menn sem geta hoggið á þennan hnút. Það er forseti Alþingis og hæstv. dómsmálaráðherra. Ég ætla að taka undir þá ósk sem hér hefur komið fram dag eftir dag, viku eftir viku. Það er orðið mjög brýnt að leysa úr þessu. Ég skil ekki hvers vegna ekki er búið að því. Við vitum alveg hver getur hoggið á hnútinn og ég fer þess allra náðarsamlegast á leit að það verði gert.