um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Þetta er mál sem þingheimur allur ætti að sameinast um. Það skiptir ekki máli hver afstaða okkar er til útlendingamála eða þess málaflokks sem heyrir undir Útlendingastofnun því að staðan er einfaldlega sú að embættismenn segja Alþingi ekki fyrir verkum. Embættismenn geta ekki stjórnað því hvernig Alþingi Íslendinga starfar. Þess vegna þurfum við liðsinni forseta Alþingis ef þetta er ekki skýrt. Alþingi gegnir ákveðnu hlutverki, vinnur fyrir fólkið í landinu og það á ekki að vera þannig að stofnanir séu vitandi vits að reyna að tefja þau störf. Það bara gengur ekki upp. Það er óboðlegt.