framlög vegna barna á flótta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Sveitarfélögin hafa lengi kallað eftir auknum fjármunum til þessa verkefnis. En þessi kerfislæga mismunun sem birtist okkur einskorðast því miður ekki við Ísland og ákvörðun íslenskra stjórnvalda. Á fréttamannafundi í fyrradag sagði Rocca, forseti Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans, að uppruni og þjóðerni fólks mætti ekki ráða för þegar bjarga þarf mannslífum. Augljóst væri að tvöfalt siðgæði ríkti í málefnum flóttafólks. Það blasir við og því verður ekki afneitað. Ríkislögreglustjóri kallaði í gær á opnum fundi allsherjar- og menntamálanefndar eftir pólitískri forystu gegn þeirri meinsemd sem hversdagslegir kynþáttafordómar eru hér á landi. Ég tek undir það að við þurfum stórkostlegt átak til að brjóta niður fordóma, kerfislæga fordóma, og spyr því: Er hæstv. ráðherra ekki sammála því? Og eigum við kannski að byrja hjá okkur sjálfum og mismuna ekki flóttabörnum eftir því hvaðan þau eru að koma? Á ekki eitt yfir alla að ganga?