framlög vegna barna á flótta.
Virðulegur forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Það sem um ræðir hér er að þetta er sérstakur tímabundinn stuðningur til sveitarfélaga en eðli máls samkvæmt bera sveitarfélögin ábyrgð hvað varðar nærþjónustu við bæði börn og fullorðna. Það á við í þessu sambandi eins og öðru. Það sem verið var að bregðast við hér er að koma tímabundið með fjárstuðning til sveitarfélaga til að mæta því að menn bjuggust við því að það yrði verulega stór og þungur hópur sem kæmi aukalega umfram það sem alla jafna væri að koma í gegnum verndarkerfið og þá þætti. Ég er bara hjartanlega sammála hv. þingmanni, eins og ég sagði. Ég sagði það í viðtalinu í gær að börn væru börn, alveg sama hvort þau koma frá Úkraínu eða annars staðar að. Þess vegna erum við að setja í gang vinnu. Þess vegna var verið að setja sérstakan stýrihóp í gang undir forystu fyrrverandi þingmanns og ráðherra Óttars Proppés sem mun leiða þá vinnu og m.a. í samtali við sveitarfélögin um samræmdu móttökuna þar sem ég geri ráð fyrir að málefni barna verði enn stærri hluti en verið hefur undanfarin ár.