hækkanir húsnæðisliðar.
Virðulegi forseti. Hækkanir á greiðslubyrði heimila og fyrirtækja upp á tugi þúsunda á mánuði eru í kortunum. Við horfðum á meðferð bankanna á heimilunum eftir síðasta hrun og þar var enga miskunn að finna. Og þótt það hrun væri alfarið þeim sjálfum að kenna þá kunnu þeir ekkert að skammast sín heldur fóru af fullri hörku eftir eigin fórnarlömbum. Og nú stefnir aftur í að heimilunum verði fórnað fyrir svokallaðan stöðugleika. En fyrir hvern er sá stöðugleiki ef heimilunum er fórnað fyrir hann?
Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að heimili, sem er kannski með 300.000–500.000 til ráðstöfunar á mánuði, ráði við 25.000–40.000 kr. hækkun, sem er það sem mun bætast við lán margra í þetta sinn vegna 1% hækkunar á viðmiðunarvöxtum Seðlabankans? Og í öðru lagi: Tugþúsundahækkanir eru yfirvofandi á leigumarkaði og boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna þeirra munu augljóslega ekki duga til. Hvað verður um leigjendur sem ekki standa undir hækkandi leigu? Hvar eiga þeir að búa? Og í þriðja lagi: Er ríkisstjórnin tilbúin að gefa það út að enginn muni missa heimili sitt í þeim hremmingum sem fyrirsjáanlegar eru og aðstæðum sem venjulegt heimili hefur lítil sem engin áhrif á? Og að lokum? Er réttlætanlegt að svipta hundruð eða þúsundir fjölskyldna heimilum sínum fyrir stöðugleika hinna? Er réttlætanlegt að sumir gjaldi fyrir stöðugleikann með heimili sínu? Er réttlætanlegt að krefjast slíkra fórna? Það eru mannréttindi að eiga heimili og börn eiga rétt á að búa á öruggu heimili. Ríkisstjórnin þarf að sýna pólitískt hugrekki og verja heimilin. Hún þarf að taka pólitíska ákvörðun og gefa út yfirlýsingu um að enginn skuli missa heimili sitt í því ástandi sem fyrirsjáanlegt er að vari um hríð. Aðeins þannig tryggjum við heimilunum stöðugleika. Er ríkisstjórnin tilbúin til þess eða ætlar hún að láta heimilin gossa?