152. löggjafarþing — 77. fundur,  18. maí 2022.

hækkanir húsnæðisliðar.

[15:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er ástæða til þess að fylgjast mjög náið með greiðslubyrði og getu heimilanna til að standa í skilum með skuldbindingar sínar. Við getum þó haft í huga í þessu sambandi að sú staða hefur ekki áður verið betri en í upphafi þessa árs og undir lok þess síðasta, þ.e. hlutfall heimila sem eiga í vandræðum með að láta enda ná saman um lok mánaðar hefur ekki áður verið lægra og það er mjög góð vísbending.

Ég ætla að leyfa mér að draga í efa að þetta sé dæmigert tilvik sem hv. þingmaður er að nefna hér, að það sé algengt að fólk neðarlega í tekjustiganum sé að sjá þetta mikla aukningu á greiðslubyrði á mánuði vegna síðustu vaxtaákvörðunar. En það breytir ekki hinu að ríkisstjórnin hefur þegar ákveðið að bregðast við og ég ætla að mæla hér fyrir frumvarpi síðar í dag um aðgerðir til þess að koma til móts við þá sem hvað minnst hafa milli handanna í samfélaginu. Ekkert eitt getum við gert sem skiptir meira máli en það að ná aftur tökum á verðlagsþróun og það ætti að vera í forgrunni umræðunnar. Hvað getum við gert til þess að slá aftur niður verðbólguvæntingar? Hvernig getum við beitt ríkisfjármálunum til að svo megi verða og hvernig samstillum við þær aðgerðir við aðgerðir Seðlabankans? Ekkert eitt skiptir meira máli en nákvæmlega þetta. Í millitíðinni, þar til því verður náð, eru mörg úrræði og þau eru ekki öll eingöngu hjá ríkisvaldinu til að grípa inn í. Þau eru líka í höndum fjármálafyrirtækjanna sem hafa hér ríkri skyldu að gegna við að koma til móts við þarfir þeirra sem þurfa á fyrirgreiðslu að halda.

Varðandi leigjendur er ég þeirrar skoðunar að við þurfum að fylgjast jafn vel með þeim markaði eins og á húsnæðismarkaðnum þar sem kaupendur eru fyrir (Forseti hringir.) og eigendur vegna þess að þar sýna tölurnar okkur (Forseti hringir.) að það eru líka viðkvæm heimili sem eiga í hlut.