152. löggjafarþing — 77. fundur,  18. maí 2022.

hækkanir húsnæðisliðar.

[15:22]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Málið er að það er of seint í rassinn gripið að gera eitthvað þegar fólk er komið í vanda og hann er fyrirsjáanlegur. Það að ætla að treysta á miskunn fjármálafyrirtækja — hæstv. ráðherra verður bara að fyrirgefa — það gengur ekki upp. Þau sýna enga miskunn, ég hef persónulega reynslu af því og það hafa þúsundir annarra. Það er ekkert hægt að treysta á það, hún er ekki fyrir hendi. Og hversu dýru verði er það keypt að ná tökum á verðbólgunni með þessum hætti? Kostnaðurinn við húsnæði er stærsti pósturinn hjá öllum heimilum og hann hækkar. Þetta er líka sá póstur sem fólk hefur minnsta stjórn á. Það getur stjórnað neyslu sinni, við getum ákveðið að keyra minna eða kaupa ódýrari tegundir af einhverju eða bara ákveðið að lifa á hafragraut í einhvern tíma til að bjarga okkur ef þess þarf. En húsnæðiskostnaðurinn er það sem er hvað erfiðast að standa undir. (Forseti hringir.) Mig langar bara að nefna að við förum allt aðrar leiðir en (Forseti hringir.) þjóðirnar í kringum okkur þar sem vextir eru ekki svona háir. Í 9% verðbólgu eru Bretar að hækka um 0,25%.