mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu.
Virðulegi forseti. Við förum yfir þetta og þessa stöðu nokkuð rækilega í þessu riti, fjármálaáætlun sem er til meðferðar í þinginu. Þegar við kynntum fjármálaáætlun til næstu fimm ára þá sögðum við nákvæmlega þetta hér: Nú er ekki lengur tími fyrir ríkisfjármálin til að vera örvandi fyrir hagkerfið. Þeir tímar eru liðnir. Covid-ástandinu er sem sagt lokið og af þeim sökum þá segjum við hér að við þurfum að sætta okkur við mun minni raunvöxt ríkisútgjalda næstu árin heldur en hefur verið undanfarin ár. Vindarnir hafa snúist. Við þurfum að beita ríkisfjármálunum með allt öðrum hætti. Það er ekki að finna í ákvörðunum Seðlabankans mikla gagnrýni á þá stefnu sem við höfum hér lagt upp með. Það sem ég heyrði hins vegar þegar ég kynnti þetta plagg hér í þinginu var mikil gagnrýni á að vera ekki með mun meiri útgjöld til hinna ýmsu málaflokka og við því átti ég bara þetta svar, sem ég endurtek hér: Það er ekki skynsamlegt að vera með mikinn vöxt ríkisútgjalda við þessar aðstæður. Það væri slæmt fyrir verðbólguhorfur. Það mun á endanum bíta heimilin, fyrirtækin og valda frekari verðþrýstingi og vandræðum fyrir okkur. Ég fagna allri umræðu um hlutverk ríkisfjármálanna við þær aðstæður sem eru uppi núna. Í þessari stefnu erum við að teikna mynd þar sem við erum á hverju ári að nálgast jöfnuð í ríkisfjármálunum meira og meira, þ.e. þannig birtist aðhaldið í ríkisfjármálunum með því að afgangurinn verður skárri á hverju ári, ef við getum sagt það, hallinn verður skárri á hverju ári kannski frekar. Við þurfum að horfast í augu við nýjustu verðbólgutölur sem hafa orðið til frá því að þetta skjal var búið til. Við þurfum að velta þessu fyrir okkur fyrir fjárlagagerðina í haust og ég á mér enga ósk heitari en einmitt þá að við sammælumst um að beita ríkisfjármálunum af fullum krafti til að ná tökum á verðbólgunni, (Forseti hringir.) styðja Seðlabankann í þeim aðgerðum sem hann er í og við höfum falið honum (Forseti hringir.) vegna þess að það er raunhæft og það er vel hægt.