mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu.
Forseti. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um að vindarnir hefðu snúist og hann talaði um gagnrýni annarra hér í þinginu. Hann veit mætavel að þingflokkur Viðreisnar var ekki í hópi þeirra heldur hefur hann gagnrýnt ríkisstjórnina allt þetta kjörtímabil og kjörtímabilið þar á undan. Ríkissjóður stóð ekki undir sér fyrir heimsfaraldur, munum það. Tekur fjármálaáætlun tillit til þess að vindarnir hafa snúist eins og fjármálaráðherra nefndi? Tekur áætlunin tillit til þess að ríkisstjórnin er læst inni með frekari bankasölu vegna árangurs síns í þeim efnum? Ég spyr, í ljósi þess að vindarnir hafa snúist, hvernig hæstv. fjármálaráðherra ætlar að draga úr útgjaldaaukningu og skuldasöfnun, hvernig hann ætlar að bregðast við stöðunni, hvernig hann sér fyrir sér hlutverk ríkisstjórnarinnar sjálfrar í þeim efnum að hverfa frá þeirri stefnu og þeirri niðurstöðu, sem er ekki bara afleiðing af heimsfaraldri heldur var uppi löngu fyrir hann og hefur raunar einkennt þetta ríkisstjórnarsamstarf.