mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu.
Virðulegi forseti. Ég hef heyrt það ansi oft hér í þingsal að halli á ríkissjóði hafi verið vandamál fyrir Covid-faraldurinn. Þetta er mikill misskilningur. Lágmarkshalli er ekkert áhyggjuefni meðan ríkissjóður býr í hagkerfi sem er í miklum vexti. Meðan við erum með mikinn hagvöxt eru skuldahlutföllin að lækka. Það er ekkert vandamál fyrir ríkið að fást við minni háttar halla á ríkisfjármálunum í miklum vexti. Það þarf hins vegar bara að spyrja sig hvort við séum að verja krónunum til þeirra verkefna sem skipta máli. Við höfum verið að verja krónum hér til uppbyggingar samfélagsins, m.a. í tæknibreytingar, í innviðauppbyggingu, í nýjar grænar lausnir og sterkara heilbrigðiskerfi, dýrari lyf, betri félagsþjónustu og margt annað. Þetta eru allt verkefni sem skipta verulega miklu máli. Í fjármálaáætlun sem við höfum teiknað upp eru skuldahlutföllin að lækka, samneyslan er að lækka sem hlutfall af landsframleiðslu og tekjurnar munu taka við sér. Þetta hangir rosalega mikið á því að við höfum hér hagvöxt og við sköpum skilyrði fyrir frekari vöxt. (Forseti hringir.) Við viljum jú vaxa út úr þessu ástandi. Ég ætla ekki að segja að við höfum lagt mat (Forseti hringir.) í eitt skipti fyrir öll á næstu fimm ár í þessari áætlun. (Forseti hringir.) Við þurfum áfram að endurmeta stöðuna eftir því sem betri upplýsingar berast.