152. löggjafarþing — 77. fundur,  18. maí 2022.

Breiðafjarðarferjan Baldur.

[15:39]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Forseti. Vöxtur í atvinnumálum og fjölgun ferðamanna er hvort tveggja gríðarlega jákvæð þróun og byggir ofan á þann grunn sem fyrir er í atvinnulífinu í landinu okkar fagra. En aukinni atvinnu fylgir aukin þörf á innviðaþjónustu. Rauð ljós blikka víða, t.d. í samgöngumálum, og væri hægt að grípa þar niður til ábendingar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur síðustu ár oft verið í fréttum vegna bilana í skipinu, sem er orðið gamalt og úr sér gengið. Eftir eina bilunina, þar sem skipið var á reki í heila nótt, kváðu yfirvöld upp úr um það að við svo búið yrði ekki unað mikið lengur. Hæstv. samgönguráðherra sagði þá að þrátt fyrir bættar horfur í samgöngumálum á sunnanverðum Vestfjörðum væri áfram brýn þörf á ferjusiglingum yfir Breiðafjörð vegna aukningar í þungaflutningum út af fiskeldi fyrir vestan og fjölgun ferðamanna og einnig út af umferðaröryggi. Nú er rúmt ár síðan þessi atburður átti sér stað og nokkrar smærri bilanir hafa átt sér stað í skipinu eftir það, og hefur það tafið áætlun. Getur hæstv. innviðaráðherra sagt okkur hvernig staðan er í dag og hvernig þessu verkefni miðar? Ef smíða á nýja ferju, sem þörf er á, þá tekur það nokkur ár. Þangað til er ekki boðlegt að núverandi ferja, Breiðafjarðarferjan Baldur, sé í rekstri. Það verður að finna skip í millitíðinni sem er samboðið þeirri þjónustu sem farið er fram á og það þarf að tryggja að öryggismál séu í lagi.