152. löggjafarþing — 77. fundur,  18. maí 2022.

Breiðafjarðarferjan Baldur.

[15:41]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og býð hann velkominn til þings. Ég hef ekki hitt á hann síðan hann kom. Við höfum nú rætt þetta mál áður, nokkrum sinnum held ég meira að segja, og ég er sannfærður um að þingmaðurinn veit nokkuð gjörla hvernig þessum málum er háttað þar sem Vegagerðin hefur átt ágætis samráðsfundi með flestum hagaðilum á svæðinu á liðnu ári. Upplýsingar hafa líka verið gefnar til sveitarstjórnanna og landshlutasamtaka bara nýlega. Ég tek undir með hv. þingmanni, og þakka honum fyrir að ítreka hvernig staðan er, að þrátt fyrir gríðarlega miklar framkvæmdir sem eru í gangi á suðurleiðinni til Vestfjarða þá verður áfram til staðar ákveðinn þröskuldur sem heitir Klettsháls. Það er mat manna að þrátt fyrir fyrri áform um að leggja af ferjusiglingar með þeim hætti sem verið hefur þegar vegur verður kominn þá er það nýtt mat að það sé ekki gerlegt vegna þess að þar sé fyrir fyrirstaða, í Klettshálsi, og það verði að vera boðið upp á þennan möguleika áfram. Að því hefur verið unnið. Það er búið að framlengja samninginn um Baldur eins og ég veit að hv. þingmaður þekkir. Á sama tíma hefur verið leitað að skipi. Hv. þingmaður segir: Það verður bara að finna skip. Það skip finnst ekki. Það er búið að leita ítrekað. Þá er bara spurning hvaða leiðir menn hafa aðrar. Ein leiðin væri sú að Herjólfur III, sem gagnaðist Vestmannaeyingum vel til langs tíma, gæti siglt þarna í tiltekinn tíma á meðan við þurfum að smíða nýja ferju sem væri með nýjum orkuskiptum og slíkt. Það er rétt hjá hv. þingmanni að það mun taka einhver ár. Þá ákvörðun þarf að taka og það fjármagn þarf Alþingi að heimila (Forseti hringir.) að verði veitt. Að þessu öllu hefur verið unnið markvisst síðan þessi atburður gerðist — og reyndar fyrir hann, (Forseti hringir.) því að það er ljóst að þessi áform hafa breyst þannig að það er þörf á ferju á Breiðafirði.