grunnskólar.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, um breytingar á samræmdum könnunarprófum.
Eina efnisatriði þessa frumvarps er að afnema tímabundið skyldu til að leggja fyrir samræmd könnunarpróf. Hafa breytingar á fyrirkomulagi prófanna verið til skoðunar á undanförnum árum en árin 2018–2019 starfaði nefnd hagsmunaaðila sem var ætlað að móta tillögur um fyrirkomulag samræmds námsmats. Skilaði sú nefnd skýrslu árið 2020 með tillögum að skipan samræmds námsmats til mennta- og menningarmálaráðuneytis. Þá starfaði starfshópur á vegum ráðuneytisins veturinn 2021–2022 og var niðurstaða hópsins að hefja vinnu við innleiðingu skýrslunnar. Skýrslan fól í fyrsta lagi í sér að skilgreind voru meginmarkmið í tengslum við samræmt námsmat. Í öðru lagi voru tilgreind þau tækifæri og kostir sem hópurinn telur að mikilvægt sé að nýta við innleiðingu. Í þriðja lagi voru reifuð þar ýmis viðfangsefni og álitamál sem þarf að huga að við framtíðarskipan sameinaðs námsmats. Í fjórða lagi voru niðurstöður hópsins settar þar fram og þær forsendur og fyrirvarar sem að þeim lúta. Eftir að niðurstöður hópsins lágu fyrir var mikill vilji til að halda áfram að vinna með tillögur hópsins. Í september sl. var skipaður starfshópur ásamt samráðsnefnd hagsmunaaðila til að vinna að frekara framtíðarskipulagi samræmds námsmats á Íslandi. Er sá starfshópur og samráðsnefnd enn að störfum og vinnur að verkáætlun sem mun liggja fyrir í byrjun sumars. Áfram verður unnið sameiginlega að undirbúningi af hálfu ráðuneytis og er það frumvarp sem nú er mælt fyrir grundvallarforsenda þeirrar vinnu.
Virðulegi forseti. Ég vík að efnisatriðum þessa frumvarps. Með fyrstu og einu grein þessa frumvarps er kveðið á um að þrátt fyrir 39. gr. laga um grunnskóla sé ekki skylt að leggja fyrir samræmd könnunarpróf til og með 31. desember 2024. Mikið álag hefur verið á skólakerfinu á undanförnum árum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru auk þess sem fyrirlagning samræmdra könnunarprófa hefur ekki tekist í öllum tilvikum á undanförnum árum. Óvissa tengd framkvæmd samræmdra könnunarprófa hefur valdið óöryggi meðal barna og fjölskyldna. Með vísan til þess að það sem er barni fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar hið opinbera gerir ráðstafanir er varða börn er lagt til að fresta samræmdum könnunarprófum tímabundið þar til ráðuneytið hefur innleitt nýtt samræmt námsmat sem byggist á tillögu skýrslu um framtíðarstefnu um samræmt námsmat frá árinu 2020. Verði frumvarpið að lögum mun það þegar öðlast gildi.
Virðulegur forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.