152. löggjafarþing — 77. fundur,  18. maí 2022.

grunnskólar.

579. mál
[17:46]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir þetta andsvar. Eins og fram hefur komið, og kom fram í mínu máli og í fréttum, þá hefur, skulum við segja, ekki gengið að leggja fyrir samræmdu prófin vegna þess að tæknikerfi og annað hefur hrunið þegar þau hafa verið lögð fram. Menn hafa verið að velta því fyrir sér hvort fara eigi í fjárfestingu í nýju samræmduprófakerfi. Niðurstaðan úr samtali við hagaðila, kennarasamfélagið og fleiri aðila, var sú að reyna að hefja þróun við nýjan matsferil sem á að gefa betri mynd af stöðu nemandans en þessi samræmdu próf eins og við þekkjum þau og samræmdu prófin sem ég tók á sínum tíma. Hugsunin á bak við það að fresta samræmdu prófunum núna er sú að fara af fullum krafti í það að forma þennan matsferil, klára það verkefni og koma svo með það formað í lögum hér hvernig sá matsferill skuli vera upp byggður. Á meðan samræmdum prófum er ekki frestað með lagaskyldu ber okkur í sjálfu sér að leggja þau fyrir. Þar með bæri okkur að fara í innleiðingu á nýju tölvukerfi, sem menn telja að sé ekki skynsamlegt af því að vilji er til þess að fara í annað kerfi sem á að meta námsárangur nemenda. Þetta er útskýringin. Ég vona að þetta svari spurningu hv. þingmanns. Síðan erum við líka í þessari vinnu, sem kemur ekki fram í þessu frumvarpi, að skoða möguleikann á því að taka í auknum mæli þátt í alþjóðlegum samanburðarrannsóknum í gegnum PISA og fleira þar sem við erum að meta skólakerfi og jafnvel einstaka skóla út frá alþjóðlegum samanburði, og það kæmi þá samhliða.