Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 939, um forvarnir og viðbrögð við gróðureldum, frá Gísla Rafni Ólafssyni. Einnig hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 868, um skiptingu þjónustuþega VIRK eftir starfsstéttum, frá Oddnýju G. Harðardóttur, á þskj. 636, um skerðingar lífeyristekna vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar, og þskj. 869, um aðgerðir til að auðvelda aðgengi erlendra sérfræðinga utan EES að íslenskum vinnumarkaði, báðar frá Jóhanni Páli Jóhannssyni. Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur einnig óskað eftir fresti til að veita skrifleg svör við eftirfarandi fyrirspurnum frá Andrési Inga Jónssyni; á þskj. 337, um viðurkenningu sjúkdómsgreininga yfir landamæri, á þskj. 543, um aðgerðir á ábyrgð ráðuneytisins gegn ofbeldi og afleiðingum þess, og að lokum á þskj. 874, um fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni.