fyrirhugaðar brottvísanir.
Herra forseti. Formaður Rauða krossins segir að hér sé verið að taka upp útlendingastefnu sem verður með þeim harðari í Evrópu og hefur bent á að flóttafólki sé mismunað eftir uppruna. Við sáum þessa stefnu í síðustu viku þegar fram kom hjá hæstv. dómsmálaráðherra að til standi að vísa hátt í 300 manns til Grikklands. Þetta gerist á sama tíma og þörf fyrir vinnufúsar hendur hefur aukist hér á landi vegna aukins ferðamannastraums. Okkur vantar fólk og ríkisstjórnin hyggst senda úr landi 300 manns. Í þeim hópi er 22 ára sómölsk stúlka sem starfar sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og hennar bíða hræðileg örlög í Grikklandi. Þarna er líka Palestínumaður sem hefur dvalið hér í tvö ár og starfað í ferðaþjónustu og vinnuveitandi hans skilur ekki af hverju ríkisstjórnin hyggst senda hann úr landi. Hvert og eitt í þessum hópi á sína sérstöku sögu en hæstv. dómsmálaráðherra talaði einungis um ólögmæta dvöl eins og að hér séu á ferð glæpamenn en ekki fólk á flótta undan óbærilegum aðstæðum, fólk sem ekkert hefur til saka unnið annað en að reyna að brjótast út úr ómannúðlegum aðstæðum.
Aðspurður segir hæstv. forsætisráðherra í viðtali á visi.is að við þurfum að horfa á stóru myndina í þessu og kennir síðan um skorti á heildarstefnumótun í málaflokknum. Þessir 300 einstaklingar sem nú eiga yfir höfði sér brottvísun eru í vanda núna, hæstv. forsætisráðherra, og þeim gagnast ekki heildarstefnumótun sem enginn veit hvað er og enginn gengst við. Spurningin er einföld: Ætlar hæstv. forsætisráðherra að beita sér fyrir því að það fólk sem hér hefur dvalið, unnið og fest rætur í talsverðan tíma, en á nú að senda til Grikklands, fái dvalarleyfi?