152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

fyrirhugaðar brottvísanir.

[15:09]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þessi mál upp. Það er þrennt sem mig langar að nefna af því að það voru þrjú atriði sem hann kom inn á í sinni fyrirspurn. Í fyrsta lagi er því haldið fram að Ísland stefni í það að vera með hörðustu innflytjenda- og flóttafólksstefnu í Evrópu. Ég get ekki annað en andmælt því harðlega þegar við skoðum einfaldlega þróun síðustu ára þar sem einmitt hefur verið tekið á móti fleirum en nokkru sinni fyrr, hlutfallslega fleirum líka af þeim sem hafa sótt um. Ef við berum okkur saman til að mynda við Norðurlönd hefur Ísland verið með mun frjálslyndari stefnu þar sem aðilar í þessari stöðu, sem hv. þingmaður gerir hér að umtalsefni, eru geymdir í lokuðum búðum áður en þeir eru sendir úr landi. Við heyrum núna fregnir frá Danmörku þar sem Danmörk hefur í huga að útvista þjónustu sinni við fólk með alþjóðlega vernd til Rúanda, sem er það sama fyrirkomulag og Bretar hafa kynnt. Þannig að ég hlýt að andmæla því þegar hv. þingmaður heldur þessu fram í sinni fyrirspurn.

Í öðru lagi er spurt líka: Eru einhverjar sérreglur um suma? Væntanlega er þá verið að vitna til fólks sem hingað leitar frá Úkraínu, hvort það gildi aðrar reglur um það en aðra flóttamenn. Auðvitað hefur fjöldinn einn og sér, í ljósi þess að hingað hafa núna meira en 1.000 manns óskað eftir alþjóðlegri vernd frá Úkraínu og aðstæður eru mjög sérstakar í Evrópu, gert það að verkum að það hefur verið brugðið á sérstök úrræði og ég vil nefna sérstaka móttökustöð í Domus Medica, tímabundnar aðgerðir vegna móttöku barna í skóla. Það eru engar sérreglur sem gilda um réttindi og þjónustu við einstaklinga af einu þjóðerni umfram annað en það var gripið til ákveðinna aðgerða til að bregðast við fordæmalausum fjölda.

Þá hvað varðar þennan hóp núna. Ég legg á það áherslu að sjálfsögðu að við horfum til þess að þetta eru auðvitað einstaklingar. Þetta er ekki einsleitur hópur. Aðstæður fólks eru mismunandi. Ég veit það hins vegar að þau eiga það sammerkt að hafa beðið hér vegna Covid. Ég hef ekki fengið svör við því (Forseti hringir.) en ég veit að dómsmálaráðuneytið er að afla sér upplýsinga um það hvort það sé verið að senda fólk til Grikklands sem stendur. (Forseti hringir.) Ég hef ekki fengið það staðfest. En mér finnst mjög mikilvægt að við horfum til þess hverjar aðstæður eru (Forseti hringir.) þar áður en slíkar ákvarðanir eru teknar. Ég kem nánar að þessu í seinna svari.