152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

fyrirhugaðar brottvísanir.

[15:12]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Jú, auðvitað á sér stað mismunun. Hér er t.d. verið að veita börnum af einu þjóðerni töluvert meiri stuðning en öðrum. Það þarf náttúrlega bara sérstaka útskýringu á því. En mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra betur út í orð hennar um heildarmyndina. Er stóra myndin sú að samþykkja útlendingafrumvarp hæstv. dómsmálaráðherra sem þrengir enn að möguleikum flóttafólks? Er forsvaranlegt að vísa 300 manns úr landi til Grikklands í aðstæður sem mannúðar- og mannréttindasamtök telja óöruggar? Hæstv. forsætisráðherra svaraði ekki fyrri spurningunni. Ætlar hún að beita sér sérstaklega fyrir þennan 300 manna hóp sem hér hefur fest rætur? Og ef hæstv. forsætisráðherra hefur tíma til þá langar mig líka að spyrja hvort hún styðji útlendingafrumvarp hæstv. dómsmálaráðherra.