fyrirhugaðar brottvísanir.
Herra forseti. Af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um þessa brottvísun sem er yfirvofandi þá er, samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið frá hæstv. dómsmálaráðherra, meiri hluti þeirra sem þar um ræðir aðilar sem hafa fengið vernd í öðru Evrópuríki, þar af 80 í Grikklandi. Ég hef óskað eftir upplýsingum um það hvort önnur Evrópuríki séu að senda til Grikklands miðað við aðstæður þar, því að það er eitt af því sem er bent á, að aðstæður þar séu ekki fullnægjandi, og ég hef ekki fengið svör við því. Mér finnst skipta miklu máli að við kynnum okkur þau mál til hlítar áður en slíkar ákvarðanir eru teknar. En af því að hv. þingmaður spyr um orð mín um heildarstefnumótun þá vil ég bara benda á að mér hefur þótt skorta, og þykir enn, á það að við — eftir að hafa komið okkur saman um lög um málefni útlendinga sem voru samþykkt í mikilli sátt en höfum hins vegar reglulega verið að bregðast við ýmissi þeirri gagnrýni sem hefur komið upp, m.a. með breytingum á málsmeðferðartíma (Forseti hringir.) o.fl. — gerum atlögu að því að móta okkur einhverja stefnu sem byggir á þessum lögum. Ég veit (Forseti hringir.) að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra er að undirbúa slíka stefnumótun og það er ljóst að ekki hefur ríkt full sátt um framkvæmd þessara laga.